Vökudagar | Málningarvinna Carls

Vökudagar | Málningarvinna Carls

Thu Oct 22 2026 17:00

Málningarvinna Carls tekur þátt í Vökudögum í ár með kvöldopnun og sýningunni Málaraiðn á keppnisvettvangi, þann 22. október frá kl. 17:00 til 22:00.

Í versluninni verða tilboð á vörum og léttar veitingar í boði.

Málaraiðn á keppnisvettvangi

Guðjón Ívar Gränz keppti á Íslandsmeistaramótinu í málaraiðn árið 2025, þar sem hann varð Íslandsmeistari. Sigurinn tryggði honum þátttökurétt á Norðurlandamótinu í málaraiðn sem haldið var í Stokkhólmi í byrjun september 2026.

Á sýningunni verður farið yfir þessa leið frá Íslandsmeistaramótinu til Norðurlandamótsins. Þar verða æfingaverk til sýnis ásamt ljósmyndum frá mótunum, undirbúningi og vinnuferlinu. Þannig fá gestir að kynnast betur hvað felst í keppni í málaraiðn og þeirri vinnu og nákvæmni sem liggur að baki.

Kíktu við og eigðu notalegt kvöld með okkur á Ægisbraut 11.