Vísindakaffi: Vísindi til áhrifa - hreyfiafl samfélagslegrar nýsköpunar og frumkvöðlastarfs
Hygge, kaffi og bakarí, Borgartún 24, 105 Reykjavík Directions
Tue Oct 20 2026 18:00
Vísindi til áhrifa - hreyfiafl samfélagslegrar nýsköpunar og frumkvöðlastarfs?
Komdu á Vísindakaffi Rannís, þriðjudaginn 20.október kl. 18:00 á Hygge, kaffi og bakarí í Borgartúni 24. Ókeypis aðgangur!
Við bjóðum þér að eiga notalega stund, hlusta og eiga samtal, við þau Laurence Beierlein og Rögnvald Sæmundsson.
☕️ Laurence Beierlein er dósent við UPEC-háskólann í París. Hún er meðal umsjónaraðila meistaranáms í stjórnun samfélagsábyrgðar fyrirtækja og í forsvari fyrir þátttöku UPEC í EURIDICE, samstarfsverkefni þvert á nokkra evrópska háskóla og samstarfsaðila um eflingu menntunar á sviði stafræns samfélags, samfélagslegrar nýsköpunar og hnattrænnar borgaravitundar. EURIDICE varð til innan evrópska háskólanetsins Aurora.
☕️ Rögnvaldur Sæmundsson er verkfræðingur með doktorsgráðu í tæknistjórnun. Hann hefur tekið þátt í og stundað rannsóknir á nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi og er nú aðstoðarrektor vísinda og þverfræðileika við Háskóla Íslands.
Þetta Vísindakaffi Rannís, er unnið í samstarfi við Sendiráð Frakklands á Íslandi, Háskóla Íslands og UPEC háskólann í París. Bæði HÍ og UPEC eru í evrópska háskólanetinu Aurora þar sem megináherslan er á samfélagsleg áhrif menntunar og rannsókna, meðal annars með samfélagslegri nýsköpun og frumkvöðlastarfi.
Nánar: https://shorturl.at/FI6bX