Vetrarbókin - Útgáfuhóf!

Vetrarbókin - Útgáfuhóf!

Forlagið útgáfa, Fiskislóð 39, 101 Reykjavík Directions

Thu Oct 22 2026 17:00

Í tilefni útgáfu bókarinnar Vetrarbókin eftir Vilborgu Davíðsdóttur verður blásið til útgáfuhófs í Bókabúð Forlagsins fimmtudaginn 22. október kl. 17:00.

Höfundur les upp og áritar bækur, léttar veitingar verða í boði og bókin á sérstöku útgáfutilboði.

Við hlökkum til að sjá ykkur!

Um bókina:

Vetrarbókin er fjölbreytt, skemmtileg og einstaklega fróðleg bók þar sem dimmasta árstíðin er í brennidepli. Allt frá landnámi hafa Íslendingar þurft að finna leiðir til að takast á við skammdegið og enn er það mörgum þung raun. En þó að veturinn sé langur og strangur, kaldur og dimmur, er hann líka kynngimagnaður; heiðnar vættir fara á stjá og fornar sögur lifna við.

Vilborg Davíðsdóttir hefur skrifað fjölda vinsælla skáldsagna sem gerast á fyrstu öldum Íslandsbyggðar og býr yfir viðamikilli þekkingu á lífsháttum landnemanna, keltneskra og norrænna. Hér leiðir hún lesendur á fund fortíðar og kannar sagnaheim fyrri alda í leit að því hvað kom formæðrum okkar og -feðrum að gagni í glímunni við íslenskan vetur. Saman við frásögnina fléttar Vilborg þræði úr eigin lífi svo úr verður heillandi ferðalag í gegnum myrkrið, allt frá veturnóttum þar til dag fer loks að lengja á ný.