Útskriftarveisla meistara

Útskriftarveisla meistara

Hotel Laugarbakki, Skeggjagata 1, 531 Húnaþing vestra Directions

Sat Nov 14 2026 18:00

Góðann dag,

Hótel Laugarbakka er sönn ánægja að bjóða þér/ykkur til veislu af tilefni útskriftar;

Ingu Rut Ómarsdóttur og Ragnars Braga Ægissonar, Meisturum í framreiðslu.

Inga og Ragnar útskrifuðust bæði sem meistarar á vormánuðum 2026, og erum við mjög stollt af því að hafa þau, frábært fagfólk í okkar teymi.

Hótel Laugarbakki hefur nú með sínu fagfólki, rétt til að taka nema bæði í framreiðslu og matreiðslu og erum við einkar stollt af því.

Útskriftin verður laugardaginn 14. nóvember og hefst kl. 18:00 með fordrykk

Vinsamlega skráið ykkur til leiks fyrir 10.nóvember.

Ef einhverjir vilja kveða sér hljóðs, þá endilega láta Hildi Ýr Arnarsdóttur hótelstjóra vita: hildur@laugarbakki.is

Þeir sem vilja þiggja gistingu endilega að láta okkur vita, okkur er sönn ánægja að taka á móti ykkur.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og fagna með okkur

Inga Rut Ómarsdóttir, yfirþjónn HL/HB, veitingastjóri Hótel Laugarbakka og aðstoðarhótestjóri á Hótel Blönduósi

Ragnar Bragi Ægisson, yfirþjónn HL/HB, gæðastjóri Hótel Laugarbakka og Hótel Blönduós

Hótel Laugarbakki & Hótel Blönduós

Skeggjagata 1

531 Hvammstangi

ph# 354 519 8600