Transheilunarstund við Brunnárfoss - með Gaiu, jarðar-& og ljósverum

Transheilunarstund við Brunnárfoss - með Gaiu, jarðar-& og ljósverum

Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions

Wed 26.08.2026 20:30

Við Hulda Ólafsdóttir, Hilda Hólm Árnadóttir og Harpa Dowan Howee bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í ókeypis transheilunarstund við Brunnárfoss í Kjarnaskógi, við Hamra og einnig í streymi MIÐVIKUDAGINN 26. ágúst kl. 20:30.

Í kyrrð og krafti náttúrunnar munum við opna fyrir transheilun og bjóða englum, Gaiu, jarðarverum og öðrum yndislegum ljósverum að stíga inn í stundina.

Við ætlum að leyfa okkur að njóta þess að vera í nærveru þessara fallegu vera, finna orkuna þeirra og leyfa henni að flæða inn í heilunina.

Við komum saman til að þiggja heilun, en jafnframt til að sameina kraft okkar og senda heilun til jarðarinnar. Vatnið, fossinn og náttúran í kringum okkur verða þannig einnig hluti af stundinni og þeirri orku sem við sköpum saman.

Verið hjartanlega velkomin

Performers

  • Hulda Ólafsdóttir
    Hulda Ólafsdóttir

    Markmið mitt í lífinu er að læra og eflast sem manneskja, sem og gefa af mér til að bæta samfélagið.