Tölum saman um líðan og tengsl - Barnaheill og Geðhjálp á ferð um landið

Tölum saman um líðan og tengsl - Barnaheill og Geðhjálp á ferð um landið

Edinborg Cultural Center, Aðalstræti 7, 400 Ísafjörður Directions

Wed 09.09.2026 19:30

Barnaheill og Geðhjálp taka höndum saman og ferðast um landið í haust. Þar verður fundað með efstu bekkjum grunnskóla um líðan og veruleika ungmenna á hverjum stað. Lögð verður áhersla á samskipti, tengsl og líðan. Miðvikudaginn 9. september verða samtökin á Ísafirði að funda með 10. bekkingum á norðanverðum Vestfjörðum.

Um kvöldið, kl. 19:30, er boðið til opins samtals í Edinborgarhúsinu þar sem nemendur og/eða hópstjórar kynna það helsta sem kom fram í hópavinnunni. Þangað er forsjáraðilum sérstaklega boðið til að hlusta og eiga samtal um það sem brennur á börnum og ungmennum svæðisins.

Þar verða einnig umræður í lokin með áherslu á jákvæð skilaboð sem hægt er að byggja á í áframhaldandi vinnu innan hvers samfélags og á hverju heimili. Í anda Geðlestarinnar endar dagskráin á stuttum tónleikum með Unnsteini Manuel.

Á þennan fund eru öll velkomin en þó er ekki æskilegt að börn yngri en 12 ára mæti.

Performers