Til fundar við formæður - netnámskeið fyrir konur

Til fundar við formæður - netnámskeið fyrir konur

Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions

Thu Nov 05 2026 19:30

Til fundar við formæður - netnámskeið fyrir konur 5. - 26. nóvember 2026 á Zoom

Fjögurra vikna netnámskeið þar sem þú, kæra kona, setur saman sögu formóður sem þig langar til að kynnast betur, aðstæðum hennar og lífi.

SKRÁNING HÉR FYRIR NEÐAN - TEKIÐ ER Á MÓTI SKRÁNINGUM TIL KL. 12, MIÐVIKUDAGINN 4. NÓVEMBER

Á námskeiðinu verður þú leidd í gegnum það skref fyrir skref að

  • velja hvaða formóður þú tekur fyrir (og kannski ertu nú þegar alveg viss)
  • byrja að safna í sarpinn, upplýsingum og minningum
  • afla heimilda í gögnum
  • setja kjöt á beinin og taka þér skáldaleyfi þar sem það á við
  • stilla upp sögu og prófa að deila henni með öðrum
  • nýta þessa vegferð til að kynnast formóðurinni sem persónu og sjálfri þér um leið

Í lok námskeiðsins verður þú tilbúin með fullbúna sögu, sem tekur um 10 mínútur að segja.

Reynsla margra sem vinna með sögu formæðra á þennan hátt, er sú að kynnast um leið sjálfum sér betur og þeim jarðvegi sem þær eru sprottnar úr.

FYRIRKOMULAG

Námskeiðið fer fram á Zoom og er kennt á mánudögum og fimmtudögum 5. - 26. nóvember, kl. 19.30 - 21.00, samtals 10,5 klst.

Þú færð upptöku af tímunum, svo þú missir ekki af neinu þó þú komist ekki.

Þér býðst að vera með í lokuðum hópi á Facebook, til stuðnings, fróðleiks og skemmtunar.

Þátttakendur vinna sína sögu hver fyrir sig, en deila með öðrum konum á námskeiðinu í litlum hópum.

UMSAGNIR

Nú hafa yfir 100 konur tekið þátt í námskeiðinu og hafa þær gjarnan notað orðin "skemmtilegt, gagnlegt, fræðandi og gefandi", til að lýsa reynslu sinni af þessu ferðalagi.

Hér er eitt dæmi um umsögn:

"Námskeiðið var sérlega velútfært af stjórnenda hálfu, þið miðluðuð mikilvægu efni á svo nærfærinn, faglegan og lærdómsríkan hátt. Að fara til fundar við formóður sína, leita heimilda, rifja upp minningar og koma efninu til skila á 10 mínútum, henni til heiðurs er ánægjulegt afrek. Þó við hefðum viljað hittast í raunheimum, þá fór ekki neinn tími í keyrslu, ófærð, bið eða útúrdúra, svona fyrir framan tölvuna.

Tímaramminn stóðst, kennsluaðferðir fjölbreyttar og hver tími áskorun og tilhlökkunarefni hjá mér. Ég mæli hiklaust með þessu skemmtilega og gagnlega námskeiði." Margrét Magnúsdóttir

LEIÐSÖGN

Kennarar á námskeiðinu eru Sigurborg Kr. Hannesdóttir og Kristín S. Einarsdóttir. Þú getur fengið að vita meira um þær, hér fyrir neðan.

VERÐ OG GREIÐSLA

Verð fyrir námskeiðið er kr. 57.900 og greiðist áður en það hefst. Snemmskráningarverð 52.700, ef greitt fyrir lok dags, 23. október.

Hafir þú komið áður á formæðranámskeið, er verðið 49.500 og í bónus fáið þið sem eruð að koma aftur, einn nettíma áður en námskeiðið byrjar.

Athugaðu, að mörg stéttarfélög styrkja námskeið sem þetta.

Nánari upplýsingar um greiðslu verða sendar eftir skráningu.

Verði námskeiðið fellt niður af einhverjum ástæðum, er gjaldið endurgreitt að fullu. Ef þátttakandi hættir við er gjaldið endurgreitt, allt að fjórum dögum áður en námskeiðið hefst. Eftir þann tíma geturðu nýtt upphæðina sem inneign fyrir þig síðar, eða fyrir vinkonu.

NÁNAR UM KENNARANA

Sigurborg:

„Ég fór fyrst að fást við sagnalistina árið 2000 og fann að það að segja sögur er mögnuð leið til að miðla reynslu og þekkingu. Sögur virðast tala til sálarinnar. Það atvikaðist síðan þannig að ég aflaði upplýsinga og sagði sögur formæðra og -feðra á ættarmótum í fjölskyldunni. Þá upplifði ég að þessar ættarsögur gáfu mér og fleirum dýpri þekkingu á því hvaðan við komum og þar með hver við erum. Og sögurnar tengdu afkomendurna ekki aðeins formæðrunum og –feðrunum, heldur líka hverjum öðrum. Verkefnið „Til fundar við formæður“ er sprottið af löngun til að leyfa fleirum að upplifa þessa tengingu.“

Sigurborg hefur BA próf í félagsfræði og félagsráðgjöf og meistaragráðu í

ferðaþjónustu. Hún hefur starfað síðustu

13 ár sem ráðgjafi í þátttöku almennings og rekur eigið ráðgjafarfyrirtæki. Hún kennir jafnframt 5Rytma dans og hefur

réttindi og reynslu af jógakennslu og jógaþerapíu. Sigurborg hefur komið fram sem söng- og sagnakona og haldið námskeið í sagnalist, jóga, dansi og fleiru. Hún nýtir sagnalistina æ meira í öllum sínum störfum.

Kristín:

„Ég hef eiginlega frá því ég man eftir mér haft gaman af hvers konar grúski. Ég er alin upp þar sem þrjár kynslóðir bjuggu í nánu samneyti og endalaust var verið að velta fyrir sér sögu einstaklinganna, nærumhverfisins og þjóðarinnar. Við börnin tókum þátt í þessum umræðum, lærðum að afla okkur upplýsinga og spyrja að því sem okkur þyrsti að vita. Ég tel að þetta hafi haft mótandi áhuga á störf mín og áhugamál. Þannig kviknaði snemma áhugi á því að ferðast um landið með það í huga að landslag væri lítils virði ef það héti ekki neitt. Snemma fór ég að grúska í fjölskyldusögunni. Ég hef alltaf verið hugfangin af góðum sögum og kveðskap og lesið mikið. Mér finnst einhverjir töfrar við það að geta farið inn í hugarheim forfeðra- og formæðra og sett mig í þeirra hugarheim og jafnvel fundið af hverju mín eigin saga er eins og hún er. Sigurborgu kynntist ég þegar ég sótti formæðranámskeið hjá henni og það er ánægjulegt að fá nú að taka þátt í því hinu megin við borðið.“

Kristín Sigurrós hefur B.Ed próf í kennslufræðum og MA próf í menntavísindum. Hún hefur starfað sem grunnskólakennari, blaðamaður, viðburðastjórnandi og á söfnum. Í dag er hún forstöðumaður Héraðsbókasafns Skagfirðinga og jafnframt svæðisleiðsögumaður og hefur m.a. skipulagt ferðir með leiðsögn á slóðir skáldkonunnar Guðrúnar frá Lundi. Hún hefur auk þess tekið virkan þátt í ýmis konar félagsstörfum og sótt fjölmörg námskeið.

NÁNARI UPPLÝSINGAR

Facebook síðan TIL FUNDAR VIÐ FORMÆÐUR

Sigurborg Kr. Hannesdóttir, sigurborgkristin@gmail.com, sími 866 5527