Þekkingarsetur Suðurnesja

Þekkingarsetur Suðurnesja

Þekkingarsetur Suðurnesja, Garðvegur 1, 245 Suðurnesjabær Directions

Sat Oct 17 2026 13:00

Opið laugardag og sunnudag frá 13.00 til 17.00.

Garðvegi 1, 245 Suðurnesjabæ. 

Þekkingarsetur Suðurnesja er miðstöð náttúruvísinda á Suðurnesjum.

Innan veggja setursins er Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum og Náttúrustofa Suðvesturlands. Á neðri hæð setursins er lista- og náttúrusýningin Huldir heimar hafsins – ljós þangálfanna og á efri hæðinni er sögusýningin Heimskautin heilla sem fjallar um franska vísindamanninn og skipstjórann Jean-Baptiste Charcot og sjóslysið þegar rannsóknarskipið hans, Porquoi-Pas? fórst við strendur Íslands árið 1936.
 
Fróðleiksfúsi er gagnvirkt spjaldtölvuforrit þar sem gestir geta kynnst dýrum safnsins á nýjan, og fróðlegan hátt í gegnum sögur og fræðslu Fróðleiksfúsa og félaga. Forritið er bæði íslensku og pólsku. 

Aðgangur er ókeypis.