Svakalega sögusmiðjan í Bókasafni Mosfellsbæjar

Svakalega sögusmiðjan í Bókasafni Mosfellsbæjar

Mosfellsbær public library, Þverholt 2, 270 Mosfellsbær Directions

Fri Nov 13 2026 15:30

Finnst þér gaman að skrifa og teikna? Viltu búa til sögur? Komdu í sögusmiðjuna og lærðu að búa til fyndnar og spennandi sögur.

Þemað í sögusmiðjunni er vinátta og hópurinn hittist í tvö skipti.

Eva Rún Þorgeirsdóttir, rithöfundur, og Blær Guðmundsdóttir, teiknari, gáfu út bókina Bestu vinir á dögunum og ætla af því tilefni að halda sögusmiðju þar sem þemað er vinátta.

Þær hafa búið til fjölmargar barnabækur og kennt krökkum um allt land að semja sögur í Svakalegu sögusmiðjunni. Bestu vinir hlaut barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur árið 2026.

Smiðjan er fyrir krakka á aldrinum 9 - 12 ára. Athugið: skráning nauðsynleg! Skráning fer fram á sumarfrístundarvef Völu: https://sumar.vala.is

Dagskrá smiðjunnar:

föstudaginn 13. nóvember á milli kl 15:30 - 17:30

laugardaginn 14. nóvember milli kl. 12:00 – 14:00