SúEllen - Útgáfuhóf

SúEllen - Útgáfuhóf

ÆGIR 220 brugghús, Strandgata 90, 220 Hafnarfjörður Directions

Fri Oct 30 2026 20:00

SúEllen – útgáfuhóf á Ægi 220

Föstudaginn 30. október kl. 20:00

Það er komið að því!

SúEllen fagnar útgáfu fimmtu hljómplötu sinnar sem ber heitið „Stórir draumar“ með sérstökum útgáfutónleikum á Ægi 220 í Hafnarfirði.

Platan „Stórir draumar“ markar nýjan kafla í sögu SúEllenar – hljómsveitar sem hefur í gegnum árin skapað sér sérstöðu í íslensku tónlistarlífi með fallegum melódíum, sterkum textum og sínum eigin hljómi sem þekkist langar leiðir – alla leið að austan!

Á tónleikunum verður nýja platan flutt ásamt úrvali eldri laga hljómsveitarinnar. Þetta verður því bæði útgáfuhátíð og ferðalag í gegnum tónlistarsögu SúEllenar.

Sérstakur gestur kvöldsins er Marius Ziska, einn þekktasti tónlistarmaður Færeyja. Hann kemur sérstaklega til Íslands og tekur þátt í tónleikunum með SúEllen ásamt því að koma fram á Heima-Skaga daginn eftir þar sem SúEllen verður líka.

Þessi kvöldstund verður því sannkölluð íslensk - færeysk tónlistarveisla á Ægi 220 – kvöld sem tónlistarunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara.

Komið og verið vitni að því þegar „Stórir draumar“ verða fluttir í fyrsta sinn á sviði.

Vinylplatan og ýmis varningur verður til sölu í „Pétursbúð“ á tónleikunum.

Hljómsveitina SúEllen skipa:

Guðmundur R. Gíslason, söngur

Steinar Gunnarsson, bassi og söngur

Bjarni Halldór Kristjánsson, gítar og söngur

Jóhann Geir Árnason trommur

Jóhann Ingvason hljómborð

(Sérstakir gestir verða kynntir er nær dregur)

Ægir opnar klukkan 19:00

Veislan byrjar klukkan 20:00

Miðaverð 6.500,-

Miðasala á tix

https://tix.is/event/22491/suellen-utgafuhof

Takmarkað sætapláss

Sjáumst á Ægi!