Sögurnar á bak við verkin

Sögurnar á bak við verkin

Reykjanesbær, , Reykjanesbær Directions

Sun Oct 18 2026 14:00

Sunnudagur 18. október kl. 14:00

Nína, okkar kærasta Nína. Sögurnar á bak við verkin

Hvaða sögur leynast á bak við listaverkin?

Verið hjartanlega velkomin í Listasafn Reykjanesbæjar þar sem við fáum einstakt tækifæri til að kynnast verkum Nínu Sæmundsson í gegnum sögur þeirra sem eiga þau.

Ynda Eldborg, sýningarstýra, og Helga Þórsdóttir, safnstjóri, munu spjalla við eigendur verka sem nú eru til sýnis á sýningunni Nína, okkar kærasta Nína.

Í samtalinu fáum við að fræðast um tilurð verkanna, uppruna þeirra og hvernig þau hafa ratað í hendur núverandi eigenda. Hér gefst einstakt tækifæri til að heyra persónulegar frásagnir og öðlast nýja sýn á verk og arfleifð þessarar merku listakonu.

📅 Sunnudaginn 18. október

🕑 Kl. 14:00

📍 Listasafn Reykjanesbæjar

Við bjóðum öll hjartanlega velkomin til notalegrar og fróðlegrar stundar í safninu.