Sjáumst á Ljósanótt!
Park Inn by Radisson Reykjavik Keflavik Airport, Hafnargata 57, 230 Keflavík Directions
Thu 03.09.2026 17:00
Alltaf svo gaman á Ljósanótt!
Við hjónin ætlum að standa vaktina þessa helgi í göngugötunni á Park inn hótelinu, Hafnargötu 57 í Keflavík.
Bókaútgáfan okkar Dirrindí hefur gefið út sjö bækur frá árinu 2012 sem allar miða að því að auka vellíðan hjá lesendum.
Á Ljósanótt ætlum við að bjóða þrjár vinsælustu bækurnar til sölu á frábæru tilboðsverði. Sumar hafa verið uppseldar og ófáanlegar.
Bækurnar hafa hlotið mikið lof kvenlesenda og verið vinsælar á náttborðinu, á ferðalögum eða í sumarbústaðnum.
Kíktu á okkur og njóttu þess í leiðinni að hitta fullt af skemmtilegu fólki!
Við hlökkum til að sjá þig!
Kær kveðja,
Marta og Frikki.
Tímasetningar frá 3.- 6. september:
fimmtudaginn kl 17-22
föstudaginn kl 17-20
laugardaginn kl 14-18
sunnudaginn kl 13-16
Performers
-
Ljósanótt í ReykjanesbæA celebration event with various activities and a beautiful art exhibition.