Ratleikur um Vogana
Arahóll, , Vogar
Sun Oct 18 2026 00:00
Alla helgina.
Arahóll.
Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar í samstarfi við félagsmiðstöðina Boruna verður með ratleik í Vogum á safnahelgi. Hægt verður að njóta alla helgina.
Ratleikurinn byrjar á Arahól og leiðir svo hver staður til þess næsta. Kort sem sýnir staðsetningar má nálgast í Íþróttamiðstöðinni í Vogum.
Fimm staði þarf að heimsækja í ratleiknum og leysa þar litla þraut. Þrautirnar gefa bókstafi sem raða þarf saman. Útkoman er orð sem tengist Vogum – verðlaun verða í boði fyrir þrjá fyrstu á laugardeginum.
Vinninga má nálgast í Borunni til kl. 15 á laugardeginum.