Prjónaganga á Akranesi

Prjónaganga á Akranesi

Byggðasafnið í Görðum, Garðaholt 3, 300 Akranes Directions

Sat Nov 14 2026 11:00

Að þessu sinni ætlum við að ganga um tvö samliggjandi útivistarsvæði á Akranesi.

Við göngum um Garðalund, sem skartar stórum og tignarlegum grenitrjám og góðum göngustíg. Við göngum einnig um Klapparholt, skógræktarsvæði í nálægð við Garðalund.

Að göngu lokinni ætlum við að heimsækja Rakel Rós sem rekur Garnikó. Þar veitir hún okkur innsýn í prjónaheim sinn og við fáum tækifæri til að grípa í prjónana.

Ganga: 5 – 6 km.

Brottför/Mæting: Kl. 11 við Byggðasafnið í Görðum á Akranesi

Fararstjórn:

Ingibjörg Jónsdóttir og Hildur Björk Guðmundsdóttir