Píeta fræðsla
Rauði krossinn á Íslandi, Efstaleiti 9, 103 Reykjavík Directions
Thu Nov 05 2026 17:30
Við fáum Píeta til okkar 5. nóvember í Efstaleiti 9 kl. 17:30, með fræðslu fyrir sjálfboðaliða. Markmið fræðslunnar er að efla þekkingu okkar og öryggi í að mæta fólki sem glímir við vanlíðan, hlusta af nærgætni og styðja það við að leita aðstoðar. Fræðslan er tækifæri til að læra, spyrja spurninga og tengja umræðuna við þau fjölbreyttu samtöl og aðstæður sem við mætum í starfinu. Hlökkum til að sjá sem flesta!