Orgóber 2026 🎶 - Barnakór Keflavíkurkirkju syngja ásamt Skólakór Sandgerðisskóla.
Keflavíkurkirkja / Keflavik Church, Kirkjuvegur 21, 230 Keflavík Directions
Sun Oct 18 2026 17:00
Sunnudaginn 18. október kl. 17 verður sannkölluð sönggleði í Keflavíkurkirkju þegar þrír glæsilegir kórar barna og ungmenna koma saman og gleðja okkur með fallegum söng.
🌸 Regnbogaraddir, barnakór Keflavíkurkirkju, og Himinn & Jörð, ungmennakór Keflavíkurkirkju, syngja undir stjórn Freydísar Kneifar Kolbeinsdóttur og meðleik Arnórs Vilbergssonar organista.
🌸 Skólakór Sandgerðisskóla syngur undir stjórn Sigurbjargar Hjálmarsdóttur.
Það er fátt sem yljar hjartanu meira en söngur barna og ungmenna og við hlökkum til að eiga með ykkur fallega tónlistarstund þar sem ungar raddir fá að njóta sín í dásamlegum hljómburði kirkjunnar.
✨ Verið hjartanlega velkomin í Keflavíkurkirkju og njótið með okkur sönggleði barnanna!