Opið málþing: Hvernig hljómar þú? - Haturstjáning á netinu
Háskóli Íslands - Askja, Sturlugata 7, 102 Reykjavík Directions
Wed Oct 28 2026 12:30
Hvernig hljómar þú? – Haturstjáning á netinu
Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands stendur fyrir málþingi um samskipti og haturstjáningu á netinu miðvikudaginn 28. október í Öskju.
🗓 Miðvikudagur 28. október
⏰ Kl. 12:30–16:30
📍 Askja, N-132
🎟 Ókeypis aðgangur – skráning nauðsynleg
Jón Gnarr opnar þingið áður en sérfræðingar stíga á svið og miðla þekkingu sinni á samskiptum og haturstjáningu á netinu. Einnig verða kynnt verkefni og árvekniátök sem eru ýmist í vinnslu eða farin af stað.
Skúli Bragi Geirdal fer með fundarstjórn.
Málþingið er hluti af árlegri Miðlalæsisviku, sem haldin er í fjórða sinn á Íslandi dagana 26.–31. október.
Viðburðurinn er opinn öllum og þátttaka er ókeypis. Sætafjöldi er þó takmarkaður og því er nauðsynlegt að skrá sig fyrir fram. Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar.
👉 Skráning: https://forms.cloud.microsoft/e/G9GrsNtcLn
Tryggðu þér sæti og taktu þátt í mikilvægu samtali um það hvernig við tjáum okkur á netinu.