Opið hús hjá Birtu

Opið hús hjá Birtu

Church of Grafarvogur, Fjörgyn 1, 112 Reykjavík Directions

Tue Mar 09 2027 20:00

Opið hús hjá Birtu – fyrir foreldra/forráðamenn sem misst hafa börn/ungmenni

Að missa barn veldur djúpri sorg sem fylgir okkur alla ævi. Stundum er gott að hitta aðra sem skilja, án þess að þurfa að útskýra.

Við hjá Birtu – landssamtökum foreldra sem misst hafa börn bjóðum til opins húss kl. 20 í Grafarvogskirkju, 2 hæð, Þar sem foreldrar geta komið saman, spjallað, deilt reynslu eða einfaldlega verið í nærveru annarra sem þekkja sorgina.

🌿 Allir velkomnir – hvort sem missirinn er nýr eða langt er um liðið.