Námskeiðaröð ÆV: Hinsegin fræðsla

Námskeiðaröð ÆV: Hinsegin fræðsla

Skrifstofa UMFÍ í Húsi ÍSÍ, Engjavegur 6, 104 Reykjavík Directions

Tue Oct 27 2026 18:00

Á Íslandi og í íþrótta- og æskulýðsfélögum landsins er fjöldi barna og unglinga hinsegin og það er mikilvægt að þau finni fyrir öryggi og vellíðan á sínum vettvangi. Þekking og fræðsla í hinsegin málum er grundvöllur fyrir því að draga úr fordómum og mismunun. Það skiptir máli fyrir þennan hóp að efla þekkingu, auka skilning á stöðu hinsegin fólks og að fagna fjölbreytileikanum.

Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:

• Um hinseginleikann

• Kynhneigð og kynvitund

• Kyneinkenni og kyntjáning

• Helstu hugtök

• Orðanotkun

• Dæmi og dæmisögur

• Umræður

• Hlutverk Samtakanna ’78

Fræðari á vegum Samtakanna '78 kemur og kennir á námskeiðinu.

Námskeiðið verður í sal UMFÍ að Engjavegi 6, 104 Reykjavík. Námskeiðið er opið öllum og aðgangur er frír.

Skráning fer fram hér: https://www.aev.is/skraning-a-namskeid