Ljósmyndasýning - Reykjanes vaknar

Ljósmyndasýning - Reykjanes vaknar

Íþróttamiðstöð Grindavíkur, Austurvegur 1-3, 240 Grindavík Directions

Sun Oct 18 2026 00:00

Ljósmyndirnar eru úti og aðgengilegar allan sólarhringinn.

Við Íþróttamiðstöð Grindavíkur, Austurvegi 1-3, 240 Grindavík

Ljósmyndasýningin Reykjanes vaknar hefur verið sett upp við Íþróttamiðstöðina í Grindavík. Sýningin segir sögu níu eldgosa á þremur árum, hættuástands, björgunaraðgerða, flóttans úr Grindavík, gerð varnarmannvirkja og sögur af fólki.

Sigurður Ólafur Sigurðsson ljósmyndari er með bakgrunn í leit og björgun og menntun björgunarfólks. Sigurður hefur tekið fjölda ljósmynda á Reykjanesi á síðustu árum. Á sýningu hans má sjá nokkrar þessara mynda, m.a. af íbúum og störfum viðbragðsaðila á vettvangi.