Litið í baksýnisspegilinn
Reykjanes Museum of Heritage, Duusgata 2-8, 230 Reykjanesbær Directions
Sun Oct 18 2026 12:00
Opið frá 12:00 - 18:00 laugardag og sunnudag.
Byggðasafn Reykjanesbæjar, Duusgata 2 - 8, 230 Reykjanesbær.
Á sýningunni er litið í baksýnisspegilinn á skemmtileg augnablik sem hafa verið fönguð á mynd og staldrað við nokkrar af helstu vörðum bílvæðingar á Suðurnesjum. Í safninu er til fjöldi ljósmynda sem endurspegla þær miklu breytingar sem hafa orðið á samgöngum síðan fyrsta bílferðin var farin frá Hafnarfirði til Keflavíkur árið 1913. Betri vegir og aukinn fjöldi bíla í kjölfar síðari heimsstyrjaldar höfðu mikil áhrif, atvinnulíf efldist, vöruflutningar urðu einfaldari og ferðalög almennari.
Sýningin stendur til 12. apríl 2027.