Líf í bókum - Útgáfuhóf!
Forlagið útgáfa, Fiskislóð 39, 101 Reykjavík Directions
Thu Oct 29 2026 17:00
Í tilefni útgáfu ritsins Líf í bókum eftir Halldór Guðmundsson verður blásið til útgáfuhófs í Bókabúð Forlagsins fimmtudaginn 29. október kl 17:00.
Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við höfundinn, léttar veitingar verða í boði og bókin á sérstöku útgáfutilboði.
Verið hjartanlega velkomin!
Um bókina:
Íslensk bókmenntasaga býr yfir einstöku ríkidæmi en líka fjölmörgum gátum. Á seinni hluta miðalda skrifuðu Íslendingar slíkan fjölda frásagna á móðurmáli sínu að það á sér enga hliðstæðu í lausamálsbókmenntum Evrópu. Um leið sköpuðu þeir menningararf sem niðjar þeirra gátu stuðst við í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar mörgum öldum síðar. En þótt gullöld sagnaritunar liði hjá og landsmenn þyrftu að glíma við hallæri og hörmungar héldu þeir alla tíð áfram að semja og yrkja, skrifa og lesa, og enn eru bókmenntir, bækur og bóklestur ríkur þáttur í sjálfsmynd þjóðarinnar. Hvers vegna urðum við eiginlega þessi bókaþjóð?
Líf í bókum er heildarsaga íslenskra bókmennta frá upphafi til okkar daga, þúsund ára ævintýraleg atburðarás fjörlega rakin af Halldóri Guðmundssyni bókmenntafræðingi og rithöfundi. Um leið og hann gerir grein fyrir meginþráðum í bókmenntasögu okkar, straumum og stefnum, fjölmörgum höfundum og verkum, allt frá fornritum til nýrra innflytjendabókmennta, leggur hann persónulegt mat á mörg verkanna og bregður upp svipmyndum af skáldum og starfi útgefanda.