Kvennakvöld Víkings 2026

Kvennakvöld Víkings 2026

Víkingsheimilið, Víkingsheimilið, Safamýri | Safamýri

Fri Nov 06 2026 19:30

Kvennakvöld Víkings 2026

Hið árlega kvennakvöld Víkings verður haldið föstudaginn 6. nóvember í veislusal Víkings í Safamýri. Víkingskonur ættu ekki að láta sig vanta á þennan glæsilega viðburð.

Miðafjöldi er takmarkaður og því er mikilvægt að tryggja sér miða í tæka tíð. Hægt er að kaupa staka miða á kvöldið hér á tix en einnig er hægt að bóka heil borð (10 sæti) með því að senda póst á kvennaknattspyrna@vikingur.is.

Húsið opnar kl. 18.30 og borðhald hefst stundvíslega kl. 19.30. Glæsilegt veisluhlaðborð frá Múlakaffi og eins og lög gera ráð fyrir þá verður hið árlega happdrætti á sínum stað með veglegum vinningum. Kristmundur Axel mætir og kætir og bræðir og DJ Kobbi CoCo ætlar svo að sjá til þess að við dönsum inn í nóttina.

Ef þú hefur séróskir varðandi matinn biðjum við þig um að hafa samband á kvennaknattspyrna@vikingur.is

Við lofum söng, dansi, hlátri og mikilli gleði!