Konukvöld KEF SPA á Ljósanótt
Hotel Keflavik, Vatnsnesvegur 12-14, 230 Keflavík Directions
Wed 02.09.2026 20:00
✨ KONUKVÖLD KEF SPA Á LJÓSANÓTT ✨
Miðvikudaginn 2. september bjóðum við til glæsilegs konukvölds í KEF SPA & Fitness frá kl. 20:00–24:00.
Fyrri konukvöldin okkar hafa gengið vonum framar og við hlökkum ótrúlega mikið til að endurtaka leikinn! Safnaðu saman vinkonunum eða bjóddu mömmu, ömmu eða systur í ógleymanlegt kvöld fullt af dekri, hlátri og ljúffengum upplifunum.
Dagskrá kvöldsins:
🎤 Uppistand með Snjólaugu Lúðvíksdóttur
🍷 Vínkynning frá Mekka Winery
🍫 Súkkulaðikynning með tvíburasystrunum frá Circalo
🎁 Veglegir gjafapokar fyrir alla gesti
Innifalið í miðaverði er einnig aðgangur að KEF SPA & Fitness, baðsloppur, inniskór, handklæði og afnot af Blue Lagoon Science hárvörum í búningsklefum meðan á dvölinni stendur.
Miðahafar fá auk þess 10% afslátt af mat á KEF Restaurant fyrir viðburðinn. Bókaðu borðið þitt hér á www.kefrestaurant.is
📅 Miðvikudagurinn 2. september
⏰ Kl. 20:00–24:00
🎟 Verð: 12.800 kr.
Athugið takmarkað pláss í boði.
Tryggðu þér pláss hér á www.kefspa.is
Við verðum einnig með fjölbreytta dagskrá og spennandi tilboð á Hótel KEF alla Ljósanótt. Sjáðu nánar á www.kef.is.
Við hlökkum til að eiga yndislegt kvöld með ykkur! 💕