Kennaranám í stólajóga
Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions
Sat Jan 30 2027 09:00
Námskeiðið fer fram í fjarnámi á þessum dagsetningum:
Lota 1: 30.janúar
Lota 2: 20.febrúar
Lota 3: 13.mars
Á námskeiðinu verða kenndar æfingar í og við stól sem henta eldri borgurum, fólki í endurhæfingu, fólki sem á erfitt með jafnvægi og öllum sem vilja hægt og rólega byrja að hreyfa sig.
Loturnar fara fram á zoom þar sem verður farið yfir fræðilega hlutann og umræður. Á milli lota fá þátttakendur aðgang að upptökum með stöðunum. Skila þarf inn stuttu og laufléttu heimaprófi eftir hverja lotu til að geta útskrifast.
Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á að stunda eða leiðbeina stólajóga.Þátttakendur fá viðurkenningarskjal að námi loknu.
Kennari er Guðrún Reynis, en hún er Yoga Alliance viðurkenndur jógakennari. Karma Jógastúdíó er einnig Yoga Alliance viðurkenndur jógaskóli. Námið er viðurkennt af Yoga Alliance sem endurmenntun fyrir jógakennara.
Skráning á heimasíðu karma: karmajogastudio.is/namskeid