Kaffispjall í desember 2026
Tue Dec 01 2026 20:00
Kaffispjall Félags fósturforeldra fer fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar í Mannréttindahúsinu. Viðburðirnir eru vettvangur fyrir fósturforeldra til að hittast, ræða saman, sækja og/eða deila reynslu og er frábær vettvangur fyrir öll til að sækja stuðning frá hinu stærra samfélagi fósturforeldra.
Hefð er fyrir því að kaffispjallið í desember sé með hátíðlegum blæ og mun félagið bjóða upp á bæði áfenga og óáfenga jóladrykki ásamt piparkökum og öðrum jólalegum sætindum.