Jólin á suðupunkti
National Theatre of Iceland - Basement, Hverfisgata 19, 101 Reykjavík Directions
Fri 03.12.2027 20:00
Sýningin sem gerði allt vitlaust í fyrra snýr aftur í Þjóðleikhúskjallarann!
Nú mæta ofurkonurnar í Raddbandinu aftur - stressaðri, þreyttari og með enn fleiri bolta á lofti.
Við fylgjumst með ungum mæðrum undirbúa hin fullkomnu jól, án þess þó að gefa nokkuð eftir í móðurhlutverkinu. Ná þær að töfra fram heilög jól í tæka tíð eða tryllast þær á sjálfsafgreiðslukassanum í Bónus?
Leikkonur og höfundar verksins, Auður Finnbogadóttir, Rakel Björk Björnsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir, fara á kostum í sýningu sem byggð er á sönnum atburðum sem hefðu líklega átt að vera einkamál.
Stórskemmtileg kvöldstund þar sem tónlist, leikhús og dans renna saman í eina allsherjar jólasprengju!
Raddbandið vakti einnig athygli fyrir fjölskyldusöngleikinn Hver vill vera prinsessa? í Tjarnarbíó sem hlaut frábæra dóma og var talinn einn af hápunktum leikársins 2025 af menningargagnrýnanda Morgunblaðsins.