Hvernig tala ég við barnið mitt um netið?

Hvernig tala ég við barnið mitt um netið?

Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions

Tue Oct 20 2026 20:00

Opið foreldrafræðsluerindi – 20. október kl. 20:00

Í þessari foreldrafræðslu ætlum við að hjálpa foreldrum að finna öryggi og sjálfstraust til að opna á samtal við börn um samskipti á netinu. Áherslan verður á að nálgast samtal af forvitni, skilningi og jákvæðni, án þess að forðast erfiðar spurningar.

Samskipti á netinu eru stór hluti af lífi barna og ungmenna í dag. Hvort heldur sem er inni á samfélagsmiðlum eða í spilun tölvuleikja. Á netinu eiga þau samskipti, leika sér, læra og upplifa ýmislegt. Fyrir foreldra getur hins vegar verið áskorun að fylgjast með og vita hvernig best sé að nálgast samtalið.

Skúli Bragi Geirdal, sérfræðingur í miðlanotkun barna, og Daðey Albertsdóttir, barnasálfræðingur, leiða samtalið og deila hagnýtum ráðum og hugmyndum sem foreldrar geta nýtt í daglegu lífi.

Í fræðslunni kynnum við jafnframt bækurnar um Nadíu og Alex á netinu, sem eru hugsaðar sem verkfæri til að auðvelda samtöl foreldra og barna um stafrænan veruleika. Bækurnar eru léttlestrarbækur fyrir börn á aldrinum 6-14 ára. 

Markmiðið er einfalt: Að foreldrar fari frá fræðslunni betur í stakk búnir til að eiga opin, uppbyggileg og mikilvæg samtöl við börnin sín um netið.

Góð samtöl um netið byrja ekki á því að við höfum öll svörin, heldur á því að við sýnum áhuga og þorum að spyrja!

Fræðslan er styrkt af Lýðheilsusjóði og er því öllum opin og aðgangur gjaldfrjáls.

Verið hjartanlega velkomin!