Hrekkjavaka í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum - draugar og skrímsli

Hrekkjavaka í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum - draugar og skrímsli

Reykjavík Park and Zoo, Múlavegur 2, 104 Reykjavík Directions

Sat Oct 24 2026 16:00

🎃👻 Upplifðu hrekkjavökustemingu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum! 👻🎃 Sérstök síðdegisdagskrá tengd Hrekkjavöku verður laugardagana 24. og 31. október.

Hrollvekjandi ævintýri, draugar og skrímsli fyrir alla fjölskylduna. Viðburðurinn hentar sérstaklega börnum 6-12 ára (og hugrökkum yngri börnum) í fylgd fullorðinna.

🗓️ Dagskrá laugardaginn 24. október kl. 16:00-19:00

👻 Drauga- og skrímslaganga með Dagrúnu Ósk Jónsdóttur

Hefst kl. 16:30 og 17:30 við innganginn. Þjóðfræðingurinn góðkunni Dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir leiðir gesti um garðinn með frásögnum af skrímslum og draugum úr íslenskum þjóðsögum. Persónur úr sögunum birtast gestum ljóslifandi - þú veist aldrei hvað er bak við næstu beygju.

🌲 Völundarhús í trjálundinum ofan við hringekjuna.

Hugrakkir ungir leikarar úr nærumhverfi garðsins taka á móti gestum og fara með þá í dularfullt og ævintýralegt ferðalag þar sem ýmislegt getur leynst í myrkrinu. 👻🕸️

Hleypt inn í hópum á 10 mínútna fresti frá kl. 16:30 til 18:30.

🎭 Grímusmiðja ÞYKJÓ fyrir skapandi skrímsli og drauga

Komdu ef þú þorir!! Hefðbundinn aðgangseyrir gildir.

Sjá heildardagskrá beggja dagana, 24. og 31. október á www.mu.is