Heilsan okkar – Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta?

Heilsan okkar – Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta?

Veröld - hús Vigdísar, Brynjólfsgata 1, 107 Reykjavík Directions

Fri Oct 30 2026 11:45

Heilsan okkar – Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta?

Annar fundur haustmisseris í fundaröðinni Heilsan okkar verður haldinn 30. október kl. 11:45 – 13:15 og fjallar um peptíð – töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Fundurinn fer fram í Veröld, húsi Vigdísar við Brynjólfsgötu 1 í Reykjavík. Í lokin fara fram pallborðsumræður.

Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir, dósent við Miðstöð í lýðheilsuvísindum

Fundarstjóri: væntanlegur

Hlekkur á beint streymi frá fundinum: væntanlegt

Dagskrá:

Viðar Guðjohnsen, lyfjafræðingur hjá Lyfjastofnun.

Hlíf Hauksdóttir, lyfjafræðingur – Peptíð á mannamáli.

Arna Guðmundsdóttir, innkirtlalæknir hjá Landspítalanum – Peptíð, spennandi framtíð?

Bjarni Sigurðsson, lyfjafræðingur hjá Heilbrigðisráðuneytinu – Ströng lyfjagjöf nauðsynleg.

Pallborðsumræður í lokin. Rúna Hauksdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar verður þátttakandi í pallborðsumræðum ásamt fyrirlesurum.

Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og eru á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.