Heilög María og Hallgrímur - Tónleikar Cantores Islandiae
Hallgrímskirkja í Saurbæ, Saurbær, 301 Reykjavík Directions
Sat Oct 24 2026 16:00
Á Hallgrímshátíð 2026 eru það fornir Maríusöngvar og vers Hallgríms sem hljóma á laugardagstónleikum hátíðarinnar.
Sönghópurinn Cantores Islandiae hefur sérhæft sig í tónlist miðalda og fá nú til liðs við sig hljóðfæraleikara og mezzosópran. Það er fagnaðarefni að bjóða upp á þennan glæsilega flutning á sérlega fagurri tónlist sem er sjaldheyrð hér um slóðir.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis.
María Guðsmóðir hafði mikla þýðingu í trúarlífi Íslendinga fyrir siðaskipti. Hér verður sérstök áhersla lögð á Maríutónlist frá 15. öld, bæði úr íslenskum handritum og fjölradda tónlist frá Evrópu. Einnig hljóma íslensk tvísöngslög og þjóðlög við vers sálmaskáldsins Hallgríms Péturssonar.
Flytjendur:
Sönghópurinn Cantores Islandiae
Ingibjörg Azima Guðlaugsdóttir, sackbut
Jens Bauer, sackbut
Jóhanna Ósk Valsdóttir, mezzósópran
Lára Bryndís Eggertsdóttir, orgel
Stjórnandi: Ágúst Ingi Ágústsson
Verið hjartanlega velkomin á tónleikana og á sunnudag í hátíðarmessu, kirkjukaffi og dagskrá í tali og tónum um útgáfur Passíusálmanna, en í ár eru liðin 360 ár frá fyrstu útgáfu þeirra, sem prentuð var á Hólum í Hjaltadal árið 1666.