Heilakaffi í Hæðargarði
Félagsmiðstöðin í Hæðargarði 31, Hæðargarður 31, 108 Reykjavík Directions
Thu Nov 05 2026 17:00
Alzheimerkaffi heitir núna Heilakaffi í takt við nafnabreytingu samtakanna sem heita núna Heilahjálp - samtök um heilabilun.
DAGSKRÁ
Þjóðlagasveitin Kólga mætir og spilar nokkur lög. Þar á meðal flytur hún lagið Eitthvert annað sem fjallar um mann sem hvarf inn í þokuna.
Kaffiveitingar
Í lokin stjórnar Sveinn Arnar Sæmundsson samsöng og spilar undir á píanó.
TILGANGUR
Gefa fólki tækifæri til að koma saman og eiga notalega stund. Tilvalinn vettvangur til að hittast, hlýða á stutt erindi/skemmtun, spjalla og gæða sér á kaffi og góðum veitingum.
👥 FYRIR HVERJA
Heilakaffi er ætlað fólki með heilabilun og aðstandendum þeirra.
AÐRAR UPPLÝSINGAR
Engin þörf á að skrá sig - bara að mæta.
Kaffigjald er 500 kr. en það eru Sóroptimistar sem sjá um kaffi og veitingar.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.