Finngálkn, Nyrst & Völva - Tónleikar á Leyni 5. desember 2026

Finngálkn, Nyrst & Völva - Tónleikar á Leyni 5. desember 2026

Leyni, Hafnarstræti 95, 600 Akureyri Directions

Sat Dec 05 2026 20:00

MBS býður til svartmálmsveislu 5. desember á Leyni Akureyri.

Fram koma svartmálmsveitirnar Finngálkn og Nyrst ásamt dómsdagssveitinni Völvu.

Aðgangseyrir er kr. 3.500. Miðasala fer fram á Glaze og við hurð. Takmarkað magn miða í boði. Húsið opnar kl. 20:00 og leikar hefjast kl. 20:30.

Finngálkn er norðlenskt aldamótasvartrokk. Mettað af hroka og fyrirlitningu.

Nyrst hefur starfað síðan 2016, gefið út tvær breiðskífur og er sú þriðja í burðarliðnum. Sveitin hefur komið fram á öllum helstu þungarokkshátíðum landsins en einnig spilað víða um Evrópu á stórum hátíðum á borð við Inferno, Summer Breeze, Mystic Festival og Soulcrusher.

Völva er vöknuð úr dofa í sölum reykfylltra hofa. Sækadelískt dómsdagsdrón frá Akureyri síðan 2009 sem hefur átt endurkomu undanfarin misseri, meðal annars á Leðjuþingi í Iðnó og Norðanpaunki. Fyrsta útgáfa Völvu árið 2010 markaði upphaf MBS og umbreytingu mannfólks í slím.