A fraction of Contingency Sample
Nordic House, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Directions
Wed Oct 28 2026 00:00
Í tilefni af pallborðinu Narrative Sovereignty og sýningu heimildamyndarinnarOrsugiak (The White Gold of Greenland)í Norræna húsinu þann 22 október, verður jafnframt sýnt úrval verka úr Contingency Sample, sýningu sem sett var upp í Verksmiðjunni á Hjalteyri sumarið 2026.
Sýningin tengir saman Kalaallit Nunaat (Grænland), Ísland og Jamaíku í gegnum krýólít, orku og báxít, þrjár grundvallarforsendur álframleiðslu. Titill sýningarinnar vísar til geimfara Apollo 11, sem æfðu á Íslandi fyrir tunglferðina og fengu þau fyrirmæli að taka sýni strax eftir lendingu, ef eitthvað skyldi fara úrskeiðis.
ÍContingency Sampleverður álið sjálft að slíku sýni, tekið í ljósi óvissrar framtíðar jarðar. Sýningin varpar þannig fram spurningu T. J. Demos:Hver hefur rétt til að framleiða framtíðina?
Sýningarskrá Contingency Sample
Sýningin í Verksmiðjunni var styrkt af: Myndlistarsjóð, Nordic Culture Fund, Nordic Culture Point Mobility,
Danish Art Council, SSNE, Hörgársveit og Svensk-isländska samarbetsfonden