Bleik messa sunnudaginn 18.október kl 20.00
Hafnarfjarðarkirkja, Strandgata 51, 220 Hafnarfjörður Directions
Sun Oct 18 2026 20:00
Sunnudaginn 18. október kl. 20.00 verður haldin Bleik messa í Hafnarfjarðarkirkju í tilefni af Bleikum október.
Svandís Svavarsdóttir flytur hugvekju.
Sr. Jónína Ólafsdóttir þjónar fyrir altari og boðið verður upp á olíublessun.
Diddú syngur fyrir kirkjugesti og organisti er Kári Þormar.
Bleika messan er stund þar sem við sameinumst í kærleika og umhyggju fyrir þeim sem glíma við krabbamein, þeim sem hafa gengið í gegnum erfið veikindi og þeim sem við minnumst með söknuði og þakklæti.
Verið hjartanlega velkomin til þessarar fallegu stundar í Hafnarfjarðarkirkju.