Atvinnu og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar
Hljómahöll Conference Center, Hjallavegur 2, 260 Njarðvík Directions
Wed 16.09.2026 14:00
Reykjanesbær efnir til atvinnu- og framkvæmdaþings þar sem sjónum verður beint að atvinnulífi, uppbyggingu og þeim fjölmörgu tækifærum sem eru í sveitarfélaginu.
Þingið fer fram í Stapanum í Hljómahöll 16. september. Fundarstjóri verður Sigrún Inga Ævarsdóttir, samskiptastjóri HS veitna.
Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta, hvort sem um er að ræða einstaklinga eða fulltrúa fyrirtækja af Suðurnesjum eða annars staðar frá. Aðgangur er gjaldfrjáls en takmörkuð sæti eru í boði. Skráðu þig með því að smella á hlekkinn hér að neðan til að tryggja þér sæti á þinginu hér 👉 https://atvinna-framkvaemd.multiscreensite.com/#Location
Dagskrá:
🕑 14:00–14:10 | Setning þings
Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, setur þingið.
🏗️ 14:10–14:30 | Atvinnulíf, uppbygging og tækifæri í Reykjanesbæ
Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, og Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs.
Farið verður yfir atvinnulíf Reykjanesbæjar í tölum, framtíðartækifæri, laust byggingarland, nýjar atvinnulóðir, komandi framkvæmdir og helstu uppbyggingarsvæði sveitarfélagsins.
🏗️ 14:30–15:15 | Uppbygging í Reykjanesbæ
Örerindi frá fyrirtækjum um framkvæmdir, uppbyggingaráform og umsvif næstu ára:
• Samherji
• HS Veitur
• Hótel Keflavík
• atNorth
• Isavia
☕ 15:15–15:30 | Kaffihlé
💬 15:30–16:20 | Pallborðsumræður
Fyrri hluti:
• Ingvar Eyfjörð, framkvæmdastjóri Aðaltorgs
• Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi
• Kári Marís Guðmundsson, forstjóri Algalíf
Seinni hluti:
• Styrmir Hafliðason, framkvæmdastjóri Verne
• Magnús Þorsteinsson, forstjóri BLUE
• Haraldur Líndal Pétursson, forstjóri Fagkaupa
• Magnús Guðmundsson, framkvæmdastjóri Reykjanes Investment
🎤 16:20–16:30 | Erindi frá Samtökum atvinnurekenda á Reykjanesi
🌐 16:30–16:40 | Kynning á nýju atvinnuvefsvæði Reykjanesbæjar
🎙️ 16:40–16:45 | Lokaorð
Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
🥂 Frá 16:45 | Kokteilboð í Hljómahöll
Performers
-
ReykjanesbærReykjanesbær er ungt og kraftmikið samfélag í örum vexti þar sem fjölbreytileikinn fær að njóta sín. -
Vilhjálmur ÁrnasonHugleiðing um verðleikasamfélagið -
IsaviaVið tengjum heiminn í gegnum Ísland ✈️