Árna Magnússonar fyrirlestur – Hvað er í öskjunum? Fornbréf í safni Árna Magnússonar
Edda, Arngrímsgata 5, 107 Reykjavík Directions
Fri Nov 13 2026 16:00
Á fæðingardegi Árna Magnússonar handritasafnara 13. nóvember gengst Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum árlega fyrir svokölluðum Árna Magnússonar fyrirlestri.
Fyrirlesari að þessu sinni er Þórunn Sigurðardóttir rannsóknarprófessor emerítus.
Útdráttur:
Á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er varðveitt mikið safn fornbréfa sem ná frá 14. öld og allt fram á fyrri hluta 18. aldar. Einnig eru í safninu fjöldi afrita fornbréfa sem sum eru talin glötuð en innihald þeirra er nú varðveitt í uppskriftum Árna Magnússonar og skrifara hans, svokölluðum apógröfum. Um er að ræða skjöl varðandi kaupmála, máldaga kirkna, ýmiss konar samninga, dóma, jarðakaup, landamerkjamál, rekamál og margt fleira. Stofnunin fékk bréfin afhent frá Kaupmannahöfn árið 1996 en áður hafði hluti fornbréfa úr safni Árna komið til Þjóðskjalasafns Íslands, og annar hluti, þ.e. norsk bréf, fór til ríkisskjalasafnsins í Ósló. Eftir á Árnasafni í Kaupmannahöfn eru dönsk bréf og afrit norskra fornbréfa.
Á síðastliðnum þremur árum hefur verið unnið að því að ljósmynda og skrá þessar mikilvægu sögulegu heimildir með veglegum styrk frá A.P. Møller-sjóðnum. Í fyrirlestrinum verður sagt frá verkefninu, hvernig það kom til og hvernig það var gert mögulegt. Enn fremur verður greint frá uppbyggingu gagnagrunnsins, hvernig hann getur nýst fræðimönnum, rætt um tegundir fornbréfa og komið með nokkur áhugaverð dæmi um innihald bréfa. Að lokum verður fjallað um efnislega hlið bréfanna, svo sem útlit og skreytingar, eða hvað annað megi finna í gagnasafninu en texta fornbréfanna.