Brú til Bata - Styrktarkvöld til stuðnings Alanó klúbbnum og 12 Sporahúsinu
Bæjarbíó, Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður Directions
Sun 13.09.2026 20:00
Styrktarkvöld
Sunnudagurinn 13. september verður Bæjarbíó fyllt af tónlist, samveru og skýrum tilgangi þegar styrktarkvöldið Brú til Bata fer fram til stuðnings Alanó klúbbnum og 12 Sporahúsinu.
Allur ágóði rennur til reksturs og uppbyggingar Alanó klúbbsins og 12 Sporahússins.
Sigmar Vilhjálmsson, sem flestir þekkja sem Simma Vill, stýrir kvöldinu og heiðursgestur verður Ragnar Þór Ingólfsson, ráðherra félagsmála og húsnæðismála.
Framkoma:
Brynja Rán
Alaska1867
Flóni
Beggi Sóldögg
Alanó klúbburinn er líknarfélag sem rekur 12 Sporahúsið, húsnæði með fundaaðstöðu fyrir 12 spora samtök ásamt félagsmiðstöð. Í húsinu fer fram fjölbreytt 12 spora starf og þar hefur byggst upp mikilvægt rými fyrir fundi, tengsl og daglega nærveru.
Starfið er að stórum hluta borið uppi af sjálfboðaliðum og húsið gegnir mikilvægu hlutverki fyrir ólík 12 spora samtök, fólk í bata og aðstandendur.
Brú til Bata er kvöld fyrir húsið, starfið og samfélagið sem hefur byggst upp í kringum það.